Um fyrirtækið

Fyrirtækið Fraktlausnir ehf. var stofnað af þeim Arnari Þór Ólafssyni, Magnúsi Þór Þórissyni og Öddu Magný Þorsteinsdóttur í maí 2016.

Síðar bættust tveir bræður við eigendahópinn, þeir Sigurður Þórir Þórisson og Sigtryggur Þór Þórisson. Því má með sanni segja að um fjölskyldufyrirtæki sé að ræða með fjóra bræður og einn maka sem eiga og stýra fyrirtækinu í dag. Að baki þessa hóps býr mikil reynsla og þekking á flutningageiranum, bæði með sendibíla og flutningabíla.

Frá stofnun hefur fyrirtækið annast alhliða flutninga ásamt því að vera með vöruhús. Ávallt hefur verið lögð áhersla á að bjóða fyrsta flokks þjónustu og leysa sérhvert verkefni. Fraktlausnir vinna fyrir mörg helstu innflutningsfyrirtæki landsins og hafa mikla sérstöðu á flutningamarkaði.

Litið er á viðfangsefnin með lausnir að markmiði.

Átakið er okkar, árangurinn er þinn.

Eigendur